Menu

Vikumatseðill 16.-22. nóvember

Vikumatseðill Gott í matinn er svo sannarlega ekki af verri endanum og bjóðum við nú sem endranær upp á fjölbreyttar og spennandi uppskriftir þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hvort sem þig langar í fisk- eða pastarétt, vefju eða pizzu þá færum við þér nokkrar hugmyndir sem gætu hjálpað til við valið á kvöldmatnum þessa vikuna. Já og kíktu sérstaklega á helgaruppskriftirnar ef þú vilt gera vel við þig og þína með einföldum hætti.