Menu
Bragðmikil ostapizza með Dala Auði með piparkornum

Bragðmikil ostapizza með Dala Auði með piparkornum

Hér á ferðinni klassísk og einstaklega ljúffeng ostapizza sem bragð er af og líklega mín uppáhalds pizzu samsetning hingað til. Nýjasta Dala Auður með piparkornum toppaði pizzuna algjörlega og verður hér eftir notuð á hverju pizzukvöldi. Namm!

Innihald

1 skammtar
• súrdeigs pizzabotn, tilbúinn eða heimagerður
• pizzasósa
• sterk ítölsk ostablanda
• rifinn mozzarella ostur frá Gott í matinn
• hreinn rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
• Dala Auður með piparkornum
• nýmalaður svartur pipar
• fersk basilíka

Aðferð

  • Hitð ofn í 275°C eða eins hátt og hann kemst. Einnig er upplagt að nota pizzaofn.
  • Fletjið deigið þunnt út, setjið á bökunarplötu og forbakið í 5-10 mínútur eða þar til byrjar aðeins að taka lit.
  • Takið pizzabotninn úr ofninum, toppið með pizzasósu og nóg af rifnum osti. Endið á rjómaosti og Dala Auði með piparkornum og dreifið smá nýmöluðum svörtum pipar yfir.
  • Bakið í 5-10 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn.
  • Raðið ferskri basiliku yfir pizzuna og berið fram strax.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir