Menu
Tiramisú skál með grískri jógúrt

Tiramisú skál með grískri jógúrt

Tiramisú skál sem sælkerar mega ekki láta framhjá sér fara. Næringarrík og frábærlega góð skál sem þú getur borðað alla morgna eða hvenær sem er yfir daginn. Það er sniðugt að búa skálina til kvöldinu áður en það er líka hægt að gera hana samdægurs. Persónulega fæ ég aldrei nóg af kaffi fyrripart dags svo ég fæ mér hiklaust kaffi með.

Innihald

1 skammtar
chia fræ
kaffibolli, kældur
Mmm... grísk jógúrt með vanillu
vanillu próteinduft (má sleppa)
kakó duft (má sleppa)

Aðferð

  • Gott er að byrja á því að hella upp á kaffibolla og leyfa honum að kólna aðeins áður en þú blandar honum saman við chia fræin.
  • Leyfðu þessu að taka sig örlítið og blandaðu svo Mmm... grísku jógúrtinni saman við ásamt próteinduftinu.
  • Gott að gera þetta að kvöldi og leyfa að standa yfir nótt. Það er einnig hægt að borða þetta beint en mér finnst áferðin betri ef skálin hefur fengið að standa í ísskáp í a.m.k. 2-3 klst.
  • Það er hægt að sleppa próteinduftinu en þá er sniðugt að minnka kaffimagnið örlítið og nota um 60 ml.
  • Mér finnst þægilegt að nota instant kaffiduft til að búa til kaffibollann, þá set ég heitt vatn í botninn og fylli svo upp með kaldara vatni.

Höfundur: Helga Magga