Menu

Vikumatseðill 13.-19. apríl

Þriðja vika aprílmánaðar er runnin upp og við bjóðum að vanda upp á fjölbreyttar og spennandi uppskriftir fyrir alla fjölskylduna. Meðal þess sem finna má á matseðli vikunnar eru þorskhnakkar með stökkum ostahjúp, kjötbollur með kryddostasósu, sveppapizza með burrata og steikarsalat með Stóra Dímon og grilluðum maís. Við getum óhikað mælt með þessu öllu og vonum að þú veljir eina eða tvær uppskriftir til að prófa.