Einstaklega ljúffengur fiskréttur sem tekur enga stund að útbúa. Það er svo gott að nota fjögurra osta blönduna í þennan rétt því bragðmikill osturinn setur svo mikinn svip á réttinn. Í staðinn fyrir ostablönduna má líka rífa sjálfur niður t.d. sterkan Gouda eða Óðals Tind. Með fisknum er ákaflega gott að bera fram nýbakað rúgbrauð með smjöri og létt salat.
| þorskhnakkar, 800-900 g | |
| smjör | |
| hvítlauksrif | |
| sítróna | |
| panko brauðraspur | |
| 4 osta blanda (1 poki) | |
| • | fersk steinselja, handfylli |
| • | salt og pipar |
| • | rúgbrauð og ferskt salat |
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir