Menu
Kjötbollur með kryddostasósu

Kjötbollur með kryddostasósu

Góðar kjötbollur slá alltaf í gegn og þá sérstaklega hjá litla fólkinu. Þessar eru fljótlegar með góðri kryddaðri ostasósu. Hægt að bera fram með hrísgrjónum, kartöflum og fersku salati.

Innihald

4 skammtar
nautahakk
egg
brauðrasp
Goðdala Feykir, Vesturós eða parmesan, rifinn
laukur
hvítlauksrif
salt
pipar
smjör

Kryddostasósa

villisveppaostur
piparostur
matreiðslurjómi
nautakraftur
• salt og pipar

Tillögur að meðlæti

• hrísgrjón, kartöflur, hvítlauksbrauð, ferkst salat

Skref1

  • Setjið lauk og hvítlauk í matvinnsluvél og látið hana vinna þar til laukurinn hefur hakkast í litla bita.
  • Bætið nautahakki saman við ásamt eggi, brauðraspi, rifnum parmesan osti, salti og pipar.
  • Látið matvinnsluvélina vinna þar til allt hefur blandast vel saman.

Skref2

  • Setjið smjör á pönnu yfir meðalháum hita.
  • Myndið kjötbollur með tveimur skeiðum eða ísskeið. Gerið bollurnar eins stórar og þið kjósið.
  • Steikið kjötbollurnar þar til þær eru nánast full eldaðar.

Skref3

  • Takið bollurnar af og rífið niður villisveppaost og piparosti á pönnuna.
  • Hellið einnig rjómanum á pönnuna og setjið nautakraft.
  • Hrærið þar til sósan er orðin slétt og fín og osturinn hefur náð að bráðna.

Skref4

  • Setjið kjötbollurnar út í sósuna og leyfið þeim að malla í nokkrar mínútur, eða þar til þær eru fulleldaðar.
  • Kryddið með salt og pipar eftir smekk.
  • Gott er að bera kjötbollurnar fram með hrísgrjónum og fersku salati.
Skref 4

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir