Menu

Vikumatseðill 28. sept.-4. okt.

Október er rétt handan við hornið og enn á ný höldum við mánuðinn hátíðlegan undir yfirskriftinni Ostóber – tími til að njóta osta. Ostóber mun setja sinn svip á vikumatseðla mánaðarins og að sjálfsögðu munu nýjar og spennandi ostauppskriftir verða kynntar á síðunni. Við hvetjum ykkur til að prófa ykkur áfram - og njóta osta.