Menu
Búraborgari með beikoni og hunangssinnepssósu

Búraborgari með beikoni og hunangssinnepssósu

Óðals Búri er stórkostlegur ostur til að setja á hamborgara. Einstaklega bragðgóður, mildur en samt ekki of hlutlaus. Hreinlega fullkominn, og svo bráðnar hann svo vel. Pikklaður laukur, hunangssinnepssósa og beikon gera þetta svo að gúrmet máltíð í annarri vídd.

Innihald

4 skammtar
hamborgarar
hamborgarabrauð
tómatar
• ferskt salat
• súrar gúrkur
Óðals Búri
beikon

Pikklaður rauðlaukur

rauðlaukur, lítill
hvítvínsedik
vatn
sykur
salt

Hunangssinnepssósa

sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
sætt sinnep
hunang
sítrónusafi
dijon sinnep
• salt og pipar

Skref1

  • Byrjið að gera pikklaðan rauðlauk.
  • Sneiðið rauðlaukinn þunnt og setjið í krukku eða skál.
  • Setjið edik, vatn, sykur og salt í pott.
  • Hitið að suðu þar til saltið og sykurinn leysist upp og hellið yfir rauðlaukinn.
  • Setjið til hliðar.

Skref2

  • Gerið hunangssinnepssósuna.
  • Blandið öllum hráefnunum saman í skál og smakkið ykkur áfram.

Skref3

  • Undirbúið hamborgana.
  • Skerið grænmetið niður og kryddið kjötið eftir smekk.
  • Steikið eða grillið.
  • Toppið svo hvern hamborgara með tveimur sneiðum af Óðals Búra og látið bráðna.
  • Setjið loks hamborgarana saman að vild; sósa, grænmeti og pikklaður laukur.
  • Já og njótið.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir