Menu

Vikumatseðill 27. apríl - 3. maí

Síðasta vika aprílmánaðar er gengin í garð og með hækkandi sól er tilvalið að bjóða fjölskyldu og vinum upp á nýjan rétt úr smiðju Gott í matinn. Við mælum með að prófa kjúklingapasta með krydduðum rjómaostum eða klassískt lasanja með bragðmikilli kotasælu. Ef þig langar að gera vel við þig um helgina er toppurinn án efa dýrindis pizza með camembert, ferskum fíkjum og hráskinku og dásamleg pistasíu- og sítrónukaka. Njótið, njótið, njótið!