Menu
Kjúklingapasta með krydduðum rjómaostum

Kjúklingapasta með krydduðum rjómaostum

Einstaklega gott kjúklingapasta með krydduðum rjómaostum sem tekur einungis 30 mínútur að elda og bera fram fyrir fjölskylduna er eitthvað sem við öll þurfum. Hægt að skipta kjúklingnum út fyrir t.d. risarækjur og bera fram með brauði. 

Innihald

4 skammtar
pasta, t.d. rigatoni
kjúklingalundir
hvítlauksgeirar
smjör
rjómaostur með grillaðri papriku og chili
rjómaostur með tómötum og basilíku
sólþurrkaðir tómatar
matreiðslurjómi frá Gott í matinn
salt og pipar

Toppur

fersk basilíka
rifinn Goðdala Feykir, Vesturós eða parmesan

Tillaga að meðlæti

hvítlauksbrauð eða annað gott brauð

Skref1

  • Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á umbúðum, setjið smá sjávarsalt í vatnið.
  • Setjið smá olíu, salt og pipar á kjúklinginn.
  • Grillið eða steikið kjúklingalundirnar þar til hann er fulleldaður.

Skref2

  • Setjið smjör á pönnu, skerið hvítlaukinn smátt niður og steikið í stutta stund.
  • Bætið báðum rjómaostunum saman við, ½ öskju af hvorum ásamt rjóma og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Skerið sólþurrkuðu tómatana smátt niður og blandið saman við rjómaostasósuna.

Skref3

  • Þegar pastað er full soðið, setjið það saman við sósuna og hrærið vel.
  • Setjið örlítið soð af pastanu saman við, eða eins og þið þurfið svo að sósan þeki vel allt pastað og saltið eftir smekk.
  • Hér má einnig bæta við rjómaostum eftir smekk, þar til sósan verður eins og þú vilt hafa hana.
  • Berið fram með grilluðum eða steiktum kjúklingalundum, ferskri basilíku og góðum osti.
  • Einnig er gott að bera fram með heitu brauði eða hvítlauksbrauði.
Skref 3

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir