Menu
Klassískt lasanja með bragðmikilli kotasælu

Klassískt lasanja með bragðmikilli kotasælu

Lasanja er klassískur réttur sem allir elska, hér er ég að notast við nýja útgáfu af kotasælu sem er bragðbætt með hvítlauk og svörtum pipar. Nýja kotasælan setur algjörlega punktinn yfir i-ið í þessum rétti.

En með því að nota kotasælu í þennan rétt er hann mun próteinríkari en með hvítu sósunni sem sumir nota á milli laga. Ég er einnig að nota kotasæluna með chili og sriracha sem ídýfu með grænmeti sem meðlæti. Einstaklega sniðugt að mauka kotasæluna og bera fram sem sósu með grænmeti. Einnig er hægt að nota hana inn í vefjur og í aðra rétti.

Smelltu hér til að sjá TikTok myndband frá Helgu Möggu.

Innihald

5 skammtar
nautahakk
kotasæla með hvítlauk og pipar
pastasósa (400-500 g)
rifinn ostur
lasanja plötur (fer eftir stærð á fati)
laukur (150 g)
olía
kjötkraftur
vatn
salt, pipar, hvítlaukskrydd, chili krydd, oreganó, timían (1 tsk. af hverju kryddi)
fersk basilíka (má sleppa)

Meðlæti

kotasæla með chili sriracha og paprikur

Skref1

  • Byrjið á því að skera lauk smátt og steikja upp úr olíunni, bætið hakkinu á pönnuna og steikið það og kryddið.
  • Þegar hakkið er gegnumsteikt er pastasósunni bætt út á pönnuna.
  • Leysið kjötteninginn upp í 250 ml af heitu vatni og bætið út á pönnuna.
  • Bætið fersku basilíkunni út á pönnuna.

Skref2

  • Maukið kotasæluna með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
  • Smá hluti af kjötsósunni er settur í botninn á eldföstu móti, partur af kotasælunni þar yfir og svo lasanjaplötur þar ofan á, endurtakið þar til kjötsósan klárast.
  • Það má einnig blanda kotasælunni út í kjötsósuna ef einhverjum finnst það þægilegra.
  • Setjið að lokum rifna ostinn efst.
  • Rétturinn er hitaður við 190 gráður í 30-35 mínútur.
  • Næring í 100 g: kolvetni: 10,3 g, prótein: 12,5 g, fiita: 7,2 g, trefjar: 0,5 g

Höfundur: Helga Magga