Menu
Pistasíu- og sítrónukaka með mascarpone kremi

Pistasíu- og sítrónukaka með mascarpone kremi

Mjúk og ilmandi pistasíu- og sítrónukaka þar sem djúpt hnetubragð og ferskur sítrónukeimur mætast í fullkomnu jafnvægi. Punkturinn yfir i-ið er silkimjúkt mascarpone rjómaostakremið sem gerir kökuna bæði létta, ferska og einstaklega freistandi. Tilvalin á veisluboðið um páskana eða með sunnudagskaffinu.

Innihald

1 skammtar
hveiti
lyftiduft
matarsódi
pistasíukjarnar ferskir og ósaltaðir eða saltaðir (fer eftir smekk)
• börkur af tveimur sítrónum
smjör við stofuhita
sykur
sjávarsalt
egg
sýrður rjómi
mjólk
vanilludropar

Mascarpone krem

mascarpone rjómaostur frá Gott í matinn
flórsykur
rjómi frá Gott í matinn
rifinn börkur af sítrónu
ferskur sítrónusafi
• hakkaðir pistasíukjarnar ofan á kökuna

Skref1

  • Setjið smjörpappír í hringlaga eldfast mót ca. 20 cm að stærð og hitið ofninn í 180 gráðu hita með blæstri.
  • Setjið smjör og sykur saman í skál og hrærið þar til blandan er orðin ljós og létt.
  • Bætið einu eggi saman við í einu og hrærið vel á milli. Gott er að skafa hliðarnar á skálinni hér.

Skref2

  • Hakkið pistasíukjarna í matvinnsluvél þar til þeir eru orðnir fínsaxaðir. Passið þó að hakka þá ekki of lengi svo þeir breytist ekki í pistasíusmjör.
  • Setjið hakkaða pistasíukjarnana í skál ásamt hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti og rifnum berki af sótrónu og hrærið vel saman.
  • Blandið þurrefnum saman við ásamt sýrðum rjóma, mjólk og vanilludropum.

Skref3

  • Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og setjið í eldfast mót og bakið í 20 -25 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.
  • Á meðan kakan er að bakast undirbúi þið kremið.
  • Takið kökuna út og leyfið henni að kólna við stofuhita áður en þið setjið kremið á svo kremið bráðni ekki.

Skref4

  • Næst er það kremið.
  • Setjið öll hráefni saman í skál og hrærið þar til kremið verður slétt og fínt.
  • Smyrjið kreminu vel á kökuna og grófsaxið pistasíukjarna og setjið ofan á kremið.
  • Kakan er best við stofuhita en þarf að geymast í kæli þar til hún er borin fram.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir