Menu

Vikumatseðill 23.-29. nóvember

Síðasta vika nóvembermánaðar er runnin upp og við bjóðum upp á ljúffengar uppskriftir sem munu án efa skapa notalegar stundir í eldhúsinu. Prófaðu til að mynda splunkunýjan fiskrétt, ofnbakaðan grjónagraut, sætkartöflu taco eða kjúklingaborgara. Svo mælum við eindregið með litlum pavloum eða camembert jólatrjám um helgina þar sem fyrsti í aðventu er á sunnudaginn.