Menu
Litlar pavlovur með súkkulaði mascarpone kremi

Litlar pavlovur með súkkulaði mascarpone kremi

Litlar pavlovur með stökkum marengs, mjúkum kjarna og silkimjúkum súkkulaði mascarpone. Fersk ber og ástaraldin fullkomna svo þessa dásamlegu blöndu af sætum og súrum bragðtónum. Smá lúxus í hverjum bita!

Einföld uppskrift dugar í um 8 litlar pavlovur.

Innihald

1 skammtar

Marengs

eggjahvítur við stofuhita
sykur
maísmjöl
hvítt edik eða sítrónusafi
vanilludropar
• klípa af salti

Súkkulaði mascarpone krem

mascarpone með súkkulaðibragði
rjómi til þeytingar, vel kældur
dökkt súkkulaði
flórsykur
vanilludropar
• klípa af salti

Ferskir ávextir og ber

hindber
ástaraldin
rifsber
• nokkur bláber

Ferskir ávextir og berber og ávextir

jarðarber

Skref1

  • Hitaðu ofninn í 120°C, með yfir- og undirhita (ekki blástur).
  • Settu bökunarpappír á ofnplötu.
  • Settu eggjahvíturnar og saltið í alveg hreina og þurra skál.
  • Þeyttu á meðalhraða þar til þær verða að hvítri froðu með mjúkum toppum.
  • Bættu sykrinum smám saman út í, einni matskeið í einu, á meðan þú heldur áfram að þeyta. Þetta ætti að taka um 8–10 mínútur.
  • Marengsinn á að verða: mjög hvítur, glansandi, þykkur og með stífum toppum.

Skref2

  • Sigtaðu maísmjöl yfir marengsinn.
  • Bættu edikinu og vanilludropunum út í.
  • Veltu blöndunni varlega saman með sleikju.

Skref3

  • Næst er að móta pavlovurnar.
  • Skiptu marengsnum í 8 jafna hluta.
  • Mótaðu hringi sem eru um það bil 8–9 cm í þvermál og búðu til smá dæld í miðjunni.
  • Til að fá fallegri og jafnari lögun geturðu sett marengsinn í sprautupoka með sléttum stút.

Skref4

  • Settu pavlovurnar inn í ofninn og lækkaðu hitann strax í 105–110°C.
  • Bakaðu í 70–80 mínútur.
  • Ekki opna ofninn á meðan bakstrinum stendur.
  • Þegar bakstrinum er lokið skaltu slökkva á ofninum og leyfa pavlovunum að kólna alveg inni í ofninum, helst í 4–6 klukkustundir eða yfir nótt.
  • Þetta er mjög mikilvægt til að koma í veg fyrir að þær falli saman eða springi of mikið.

Skref5

  • Næst er það mascarpone kremið.
  • Saxaðu súkkulaðið smátt og bræddu það yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni í stuttum lotum.
  • Láttu það kólna þar til það er orðið volgt.
  • Ekki bæta heitu súkkulaði beint út í mascarpone ostinn.
  • Þeyttu mascarpone með flórsykri, vanilludropum og salti þar til blandan verður mjúk og kremkennd. Passaðu að þeyta ekki of lengi.
  • Bættu volga súkkulaðinu út í og blandaðu þar til kremið verður alveg slétt og kekkjalaust.
  • Bættu köldum rjómanum út í og þeyttu á meðalhraða þar til kremið verður létt, loftkennt og nógu stíft til að sprauta því með sprautupoka.
  • Um leið og kremið hefur náð réttri þykkt skaltu hætta að þeyta.
  • Settu kremið í kæli í 30–60 mínútur.

Samsetning og skreyting

  • Settu pavlovurnar saman rétt áður en þær eru bornar fram.
  • Settu mascarpone og súkkulaðikremið á pavlovurnar og skreyttu með ávöxtunum og berjunum sem nefnd eru hér til hliðar.
  • Magnið af ávöxtum og berjum er aðeins til viðmiðunar. Það má að sjálfsögðu aðlaga magnið eftir smekk, framboði og því hvernig pavlovurnar eru skreyttar.
  • Ef vill má einnig skreyta með litlu myntulaufi.
Samsetning og skreyting

Höfundur: Ana Rebelo Pinto