Menu

Vikumatseðill 23.-29. janúar

Mánudagar eru í miklu uppáhaldi hjá okkur því þeir marka upphaf nýrrar viku sem færir vonandi sem flestum góðan mat og dýrmætar samverustundir með fjölskyldunni í eldhúsinu og við matarborðið. Að þessu sinni förum við út um víðan völl og bjóðum upp á lax, pasta, pizzu, skyrköku og skinkuhorn að ógleymdum indverskum butterchicken og mexíkóskum tortillum sem munu án efa hitta í mark! Gleðilegan mánudag.