Mánudagur – Þorskhnakkar með beikoni og eplaostasósu
Þriðjudagur – Smashburger taco
Miðvikudagur – Pasta pomodoro með mozzarella kúlum
Fimmtudagur – Mexíkósk kjúklingasúpa
Síðasta vika nóvembermánaðar er runnin upp og við bjóðum upp á ljúffengar uppskriftir sem munu án efa skapa notalegar stundir í eldhúsinu. Prófaðu til að mynda mexíkóska kjúklingasúpu eða pasta pomodoro með mozzarellakúlum og gæddu þér svo á brauðbolluhring og heitu kakó með rjóma um helgina.