Menu
Heitt kakó með rjóma

Heitt kakó með rjóma

Kókómjólkin klassíska kemur hér skemmtilega á óvart sem dásamlegt heitt kakó. Frábær leið til að útbúa heitt kakó með engri fyrirhöfn en á köldum mánuðum kemur oft löngun í heitan drykk og þá er frábært að geta skellt fyrirhafnarlaust í einn slíkan. Það að frysta rjómann er svo frábær leið til þess að kæla niður heitt kakó fyrir börnin og skemmtilegt á sama tíma. Hægt er að stinga út rjómann og geyma tilbúinn í boxi í frystinum. Alltaf tilbúinn í heita kakóið.

Innihald

4 skammtar
kókómjólk
rjómi frá Gott í matinn

Skref1

  • Þeytið rjómann og finnið til bökunarpappír og gott að nota ofnplötu eða bakka sem passar í frystinn hjá ykkur.
  • Leggið bökunarpappírinn yfir bakkann og dreifið rjómanum yfir, gott er að hann sé um 1-2 cm að þykkt.
  • Frystið í 2 tíma.

Skref2

  • Hitið kókómjólkina í potti eða örbylgjuofni, gott að slökkva undir rétt áður en hún fer að sjóða.
  • Takið smákökuform og stingið út í rjómann meðan hann er frosinn og setjið út í heitt kakó.
Skref 2

Höfundur: Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir