Þriðjudagur - Ískaffi með vanillubragði
Miðvikudagur – Bakaðar kartöflur með ostafyllingu
Fimmtudagur – Kjúklingasalat með pestó og mozzarellakúlum
Föstudagur – Grillaður calzone með skinku og sveppum
Við byrjum nýjan vikumatseðil á þriðjudegi í þetta skiptið og vonum að þið hafið notið hvítasunnuhelgarinnar með góðu fólki og góðum mat. Við höldum áfram að færa ykkur sumarlegar uppskriftir og þar á meðal eru tvær splunkunýjar sem þið ættuð ekki láta framhjá ykkur fara.