Menu
Grillað rækjutaco með límónusósu

Grillað rækjutaco með límónusósu

Ég fæ ekki nóg af taco og það er svo ljúffengt að útbúa sumarlegt rækjutaco og tekur enga stund. Sósan með 36% sýrðum rjóma er eiginlega stjarnan í þessari útfærslu og passar mjög vel með grilluðum risarækjunum.

Innihald

4 skammtar
hráar risarækjur
smjör, brætt
hvítlauksrif, kramin
karrí
ferskt kóríander, saxað
sjávarsalt
chiliflögur eftir smekk
grillteinar

Límónusósa

sýrður rjómi 36% frá Gott í matinn
límóna
ferskt kóríander, saxað
hunang
sjávarsalt
svartur pipar eftir smekk
vatn

Meðlæti

avocado
rauðkál
grænt salat
radísur
ferskt kóríander
límónur
litlar hveiti tortillur

Skref1

  • Marinerið rækjurnar.
  • Blandið öllu saman í marineringuna og leggið afþýddar risarækjur í skál og blandið vel saman.
  • Látið standa á meðan þið útbúið restina af réttinum.

Skref2

  • Rífið börkinn af límónunni og kreistið safann úr.
  • Hrærið öllu í sósuna saman og smakkið ykkur til með salti og pipar.
  • Ef ykkur finnst sósan of þykk er gott að þynna hana örlítið með vatni.

Skref3

  • Skerið meðlætið niður smátt.
  • Þræðið rækjurnar upp á grillspjót og grillið á vel heitu grilli.
  • Grillið einnig tortillu kökurnar.
  • Berið fram með meðlætinu, setjið sósuna neðst og raðið svo rækjum og meðlæti ofan á, kreistið límónu yfir.
Skref 3

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir