Menu
Bakaðar kartöflur með ostafyllingu

Bakaðar kartöflur með ostafyllingu

Linda frænka spurði hvort hún ætti ekki að gera "lútmílu" í kartöflurnar þegar við vorum að grilla fyrir norðan í sumarfríinu. Ég vissi ekki hvað hún var að tala um en sagði bara já, ég er til! Þá hafði vinkona hennar frá Tékklandi gert þetta fyrir þau fyrir einhverjum árum og hún notað hugmyndina frá henni síðan þá. Ég hef aldrei fengið svona ostafyllingu áður og þetta er algjör snilld í bakaðar kartöflur, nammi namm! 

Innihald

6 skammtar

Ostafylling

sýrður rjómi frá Gott í matinn
majónes
rjómi frá Gott í matinn
hvítlauksrif
salt
pipar
rifinn Cheddar ostur frá Gott í matinn
rifinn Mozzarella ostur frá Gott í matinn

Skref1

  • Pískið saman sýrðan rjóma, majónes, rjóma, hvítlauksrif, salt og pipar.
  • Blandið síðan báðum tegundum af rifnum osti saman við og geymið í kæli fram að notkun.

Skref2

  • Skerið kross í bakaða kartöflu og leyfið vel af „lútmílu“ (ostafyllingu) að bráðna ofan í hana.
  • Hægt er að bjóða upp á bakaða kartöflu á þennan máta með hvaða kjöti, fisk, sósu og öðru meðlæti sem hugurinn girnist.
Skref 2

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir