Miðvikudagur – Kjúklinga enchiladas með krydduðum rjómaosti
Fimmtudagur – Sætkartöflurist með avocado, tómötum og ostakubbi
Föstudagur – Grillaðar kjúklingalundir og mexíkósósa
Síðasta vika maímánaðar er gengin í garð og Gott í matinn mælir með nokkrum stórgóðum uppskriftum. Kjúklinga enchiladas með krydduðum rjómaosti er frábær fjölskylduréttur og orðinn fastagestur á mörgum heimilum þar sem hann hittir í mark hjá öllum aldurshópum. Þá mælum við einnig með grilluðum kjúklingalundum og mexíkósósu og til að toppa helgina væri upplagt að skella í salat með smjörsteiktum perum eða dásamlega bananaköku með flauelsmjúku rjómaostakremi.