Menu
Bananakaka með flauelsmjúku rjómaostakremi

Bananakaka með flauelsmjúku rjómaostakremi

Æðislega góð og einföld bananakaka með flauelsmjúku rjómaostakremi. Frábær með góðum kaffibolla eða ísköldu mjólkurglasi.

Innihald

1 skammtar

Bananakaka

bananar
egg
púðursykur
matarolía
vanilludropar
hveiti
lyftiduft

Krem

rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
smjör við stofuhita
flórsykur
vanilludropar

Bananakaka

  • Hitið ofn í 170 gráður blástur
  • Bananarnir eru stappaðir með gaffli og settir í stóra skál.
  • Olíu, púðursykri, eggjum og vanilludropum er bætt út í skálina og hrært vel með gafflinum.
  • Næst er hveiti og lyftidufti hrært saman við.
  • Deigið er fær yfir í smurt brauðform og bakað í ofni í um 40 mínútur eða þar til kakan hefur fengið góðan lit og hægt er að stinga prjón í kökuna án þess að það komi deig upp.

Krem

  • Þeytið saman smjör, rjómaost og vanilldruopa þar til það verður aðeins "flöffý".
  • Bætið þá flórsykrinum út í og hrærið aðeins áfram.
  • Látið kökuna kólna alveg áður en kremið er sett á.
Krem

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir