Menu

Vikumatseðill 16.-22. febrúar

Það eru margir skemmtilegir dagar í vikunni og við tökum fagnandi á móti bolludegi, sprengidegi, öskudegi með frábærum fjölskylduuppskriftum sem eiga það sameiginlegt að smakkast einstaklega vel. Sjálfur konudagurinn er svo á sunnudaginn og upplagt að nota helgina í góðan mat með góðum konum. Njótið vikunnar og borðið góðan mat með bros á vör.