Mánudagur - Fiskur í rjómaostasósu
Þriðjudagur – Stökkar kartöflur með sósu
Miðvikudagur – Ofnbakaðar lasanja rúllur sem öll fjölskyldan elskar
Föstudagur – Pizza með sterku pepperóní og rifnum piparosti
Aðventan er tími samverustunda og notalegheita og því bjóðum við upp á einfaldar og fljótlegar uppskriftir fyrir alla fjölskylduna þessa vikuna. Við mælum svo með stórsniðugri sushi uppskrift og jólalegum ostakrans um helgina sem munu án efa heilla ykkur upp úr skónum - já eða jólasokkunum.