Menu
Stökkar kartöflur með sósu

Stökkar kartöflur með sósu

Þessar stökku kartöflur henta ótrúlega vel sem meðlæti með mat eða einar sér sem forréttur eða partýréttur.

Innihald

1 skammtar
kartöflur
sýrður rjómi 10% frá Gott í matinn
rifinn gratínostur frá Gott í matinn
límóna
vorlaukur
fersk steinselja eftir smekk
hvítlaukskrydd
ólífuolía

Skref1

  • Sjóðið kartöflurnar í söltu vatni í 20 mínútur og færið yfir á tvær ofnplötur með bökunarpappír
  • Skerið kartöflurnar í tvennt og hellið smá ólífuolíu yfir og kremjið þær með glasi. Það er sniðugt að setja smá olíu á botninn á glasinu, þá festist það síður við kartöflurnar.
  • Reynið að hafa kartöflurnar þunnar, þá verða þær stökkari.

Skref2

  • Kryddið kartöflurnar með salti, pipar og hvítlaukskryddi.
  • Setjið smá gratínost ofan á hverja kartöflu.
  • Bakið kartöflurnar í ofni við 190°C í um 30 mínútur eða þar til osturinn verður gullinbrúnn.

Skref3

  • Á meðan kartöflurnar eru í ofninum er sósan búin til.
  • Setjið sýrðan rjóma í skál ásamt safa úr einni límónu, salti, pipar og hvítlaukskryddi og blandið saman. Það má einnig nota ferskan hvítlauk fyrir sterkara hvítlauksbragð.
  • Skerið vorlaukinn smátt steinseljunni og blandið saman við sósuna.
  • Gott að geyma smá niðurskorna steinselju til að setja yfir kartöflurnar sem skraut í lokin.
  • Berið sósuna orin fram með kartöflunum.

Höfundur: Helga Magga