Menu

Vikumatseðill 11.-17. september

Það kennir ýmissa grasa á nýjum vikumatseðli Gott í matinn og má þar nefna bakaðan lax með piparrótarrjómasósu, gratínerað gnocchi með hakki og ostasósu, einfalt og einstaklega gott kúrbítssalat, kjúklingaborgara og Sernik ostaköku frá Póllandi. Við hvetjum ykkur til að prófa sem flestar uppskriftir og vonum að þið njótið vel.