Menu
Vefjur með risarækjum

Vefjur með risarækjum

Einfaldur, fljótlegur og léttur kvöldmatur fyrir alla fjölskylduna.

Innihald

4 skammtar
tortillur
salat og spínat
ferskt kóríander
fínrifnar gulrætur
sýrður rjómi 10% frá Gott í matinn
sæt austurlensk chilisósa
snöggsteiktar risarækjur (16-20 stk)
fínsaxað chili
límónusafi

Skref1

  • Léttristið tortillakökurnar á heitir pönnu.

Skref2

  • Raðið ofan á þær salati, spínati, fersku kóríander, rifnum gulrótum, sýrðum rjóma og sætri chilisósu.

Skref3

  • Léttsteikið rækjurnar báðum megin í 2-3 mínútur.
  • Raðið 4-5 rækjum ofan á hverja köku, sáldrið smávegið að fínsöxuðu chili og dreypið límónusafa yfir.

Skref4

  • Vefjið kökunum upp.
  • Gott er að setja smjörpappír utan um.
  • Berið strax fram.

Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir