Menu
Vefjur með ofnbökuðum grillosti

Vefjur með ofnbökuðum grillosti

Eins og með allar góðar vefjur þá er alltaf jafn erfitt að loka þeim þegar innihaldið er gott. Hér erum við með ofnbakaðan grill- og pönnuost í vefjunni ásamt grænmeti og jógúrtsósu.

Vefjan sem ég er með eru próteinpizzubotnar en einnig er sniðugt að nota pítubrauð eða venjulegar þunnar vefjur. 

Innihald

4 skammtar

Vefjur

lyftiduft
hveiti
hreint Ísey skyr

Ostur

grill- og pönnuostur frá Gott í matinn
olía, 1-2 msk
cummin
kóríander krydd
svartur pipar
hvítlaukskrydd
kanill

Jógúrtsósa

grísk jógúrt frá Gott í matinn
hvítlauksrif, 1-2 stk. pressuð
svartur pipar
safi úr hálfri límónu

Meðlæti

kál
gúrka
tómatar
rauðlaukur

Skref1

  • Byrjið á að búa til brauðin ef þið viljið heimatilbúnar vefjur.
  • Setjið innihaldsefnin þrjú í skál og hnoðið saman.
  • Skiptið deiginu í fjóra hluta og fletjið út í fjögur hringlaga brauð.
  • Færið yfir á ofnplötur með bökunarpappír og bakið við 180 gráður í 11-13 mínútur í blástursofni.

Skref2

  • Á meðan brauðið er í ofninum er grill- og pönnuosturinn skorinn í sneiðar með ostaskera.
  • Setjið ostinn næst í skál ásamt olíu og kryddið.
  • Raðið sneiðunum á bökunarpappír og passið að láta sneiðarnar ekki liggja ofan á hver annarri.
  • Bakið við 180 gráður í 13-15 mínútur.

Skref3

  • Næsta mál á dagskrá er að útbúa jógúrtsósuna og skera niður grænmeti.
  • Þegar allt er klappað og klárt er bara eftir að setja þetta allt saman og njóta.

Höfundur: Helga Magga