Menu
Tyrknesk egg með grískri jógúrt

Tyrknesk egg með grískri jógúrt

"Turkish eggs" eða tyrknesk egg smakkaði ég fyrst þegar ég fór í bröns á veitingastaðnum Sól í Hafnarfirði. Ég hafði aldrei fengið svona áður og heillaðist strax, bæði af útlitinu og bragðinu. Þetta er einfalt og til dæmis frábært í brönsinn, einnig hægt að gera tvöfalda eða stærri uppskrift og setja á stærri bakka fyrir fleiri til að deila með ristuðu baguette brauði.

Innihald

2 skammtar
grísk jógúrt frá Gott í matinn
hvítlauksrif, rifin
kóríander, saxað
sítróna, börkurinn
egg
ólífuolía
smjör
chillimauk
salt og pipar
ristað baguette brauð

Skref1

  • Pískið saman gríska jógúrt, rifinn hvítlauk, kóríander og rifinn sítrónubörk. Kryddið eftir smekk.
  • Skiptið blöndunni niður á tvo diska og smyrjið aðeins úr henni.
  • Ristið baguette sneiðar í ofni við 200° með smá ólífuolíu þar til þær brúnast örlítið (3-5 mín).

Skref2

  • Útbúið hleypt egg með því að sjóða vatn í potti, þegar suðan er komin upp má lækka aðeins hitann og búa til spíral í vatnið með því að snúa því í hringi með sleif.
  • Brjótið hvert egg í bolla og setjið eitt egg í einu út í vatnið. Leyfið um 10 sekúndum að líða á milli eggja.
  • Stillið klukkuna á 3 mínútur og veiðið eggin svo uppúr með gataspaða og færið yfir á eldhúspappír.
  • Gott er að gera tvö egg í einu til að ruglast ekki á þeim.

Skref3

  • Bræðið á meðan ólífuolíu, smjör og chillimauk saman og setjið réttinn loks saman.
  • Leggið tvö egg ofan á jógúrtblönduna á hvorum disk, skiptið chilli-olíunni á milli með því að setja hana yfir og toppið með smá rifinni sítrónu og kóríander.
  • Njótið með ristuðu baguette.
Skref 3

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir