Menu
Túnfisksalat með twaróg osti

Túnfisksalat með twaróg osti

Túnfisksalat er svo mikið snilld í millimál, hádegismat eða kvöldmat. Þetta er matarmikið túnfisksalat sem bæði er hægt að borða eintómt, á hrökkbrauð eða brauð. Í þessa uppskrift er ég að prófa nýjan íslenskan twaróg ost sem er einn vinsælasti ostur Póllands og nú framleiddur á Íslandi. Twaróg er svipaður og kotasæla en er örlítið fitu- og próteinríkari og hentar vel í matargerð.

Innihald

1 skammtar
kjúklingabaunir, eða ein dós
túnfiskur í vatni, eða ein dós
rauðlaukur
tómatur, eða 2 stk.
íslenskur twaróg ostur
grísk jógúrt frá Gott í matinn
ferskur kóríander (má sleppa)
kryddið með salti, pipar, hvítlauk, papriku og chili

Skref1

  • Byrjið á því að hella vatninu af kjúklingabaununum, skola þær og stappa með gaffli.
  • Hellið vatninu af túnfiskinum og blandið saman við kjúklingabaunirnar.

Skref2

  • Skerið niður tómata og lauk í litla bita.
  • Blandið saman við kjúklingabaunir og túnfisk, twaróg og gíska jógúrt og hrærið vel.
  • Kryddið með salti, pipar, hvítlauk og papriku.
  • Ef salatið er of þurrt má bæta út í smá safa af tómötunum eða meiri grískri jógúrt.

Næringargildi

  • Fyrir þau sem að telja macros fylgir skráning næringargilda með.
  • Næring í 100 g: Kolvetni: 7,4 g - Prótein: 10 g - Fita: 4,2 g - Trefjar: 1,2 g.
  • Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða Túnfisksalat með twaróg osti.
Næringargildi

Höfundur: Helga Magga