Menu
Tortellini spjót með mozzarella kúlum

Tortellini spjót með mozzarella kúlum

Þessi litríku og ljúffengu tortellini spjót setja skemmtilegan svip á matarborðið og það skemmir ekki fyrir hvað er einfalt að útbúa þau.

Innihald

1 skammtar
ostatortellini pasta
pestó
kirsuberjatómatar
mozzarella kúlur
• balsamik gljái
• fersk basilíka
• tréspjót

Aðferð

  • Sjóðið tortellini samkvæmt leiðbeiningum og látið svo kalt vatn renna yfir pastað til að það eldist ekki frekar.
  • Setjið pestó saman við og blandið varlega saman með sleikju.
  • Þræðið næst upp á spjót; tortellini, kirsuberjatómat og mozzarella kúlu, endurtakið þar til hráefnið er búið.
  • Setjið að lokum smá balsamik gljáa yfir og skreytið diskinn með basilíkulaufum.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir