Menu
Toblerone súkkulaðimús

Toblerone súkkulaðimús

Uppskriftina er auðvelt að stækka eftir þörfum. Músin er einnig æðisleg með hvítu Toblerone en um jólin ætla ég einmitt að hafa bæði hvítt og brúnt.

Innihald

4 skammtar
Toblerone
rjómi frá Gott í matinn
eggjahvítur
sykur
rjómi frá Gott í matinn, þeyttur
salt á hnífsoddi

Skref1

  • Toblerone er brætt yfir vatnsbaði.
  • 1 dl af rjóma er hitaður upp að suðu í öðrum potti.
  • Þegar súkkulaðið er bráðnað er heitum rjómanum hellt yfir og hrært þar til glansandi. Þá er blandan látin standa í skálinni þar til hún hefur kólnað.

Skref2

  • Eggjahvítur eru þeyttar með sykri og salti og sett til hliðar.

Skref3

  • 1 bolli af rjóma er þeyttur.
  • Helmingur rjómans er tekinn til hliðar til skrauts.
  • Hinn helmingurinn fer í skál með súkkulaðiblöndunni og eggjahvítunum.

Skref4

  • Hrærið hægt og rólega með sleif þar til allt hefur blandast saman.

Skref5

  • Blandan er sett í stóra skál eða í 4 litlar skálar og inn í ískáp í 3 kst. í það minnsta.
  • Músin geymist upp í 3 daga í kæli.
Skref 5

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir