Menu
Tikka masala með grill- og pönnuosti

Tikka masala með grill- og pönnuosti

Dásamlega bragðmikið tikka masala þar sem Grill- og pönnuosturinn fær að vera í aðalhlutverki. Osturinn er steiktur þar til hann verður fallega gylltur og fær svo að njóta sín í kryddaðri og rjómakenndri tikka masala sósu. Fullkomið með hrísgrjónum, naanbrauði, fersku kóríander og lime. Réttur sem slær í gegn hjá öllum við matarborðið!

Innihald

4 skammtar
Grill- og pönnuostur frá Gott í matinn
laukur
hvítlauksrif
ferskt engifer
smjör
tómatpúrra
niðursoðnir hakkaðir tómatar
rjómi frá Gott í matinn
vatn, ½–1 dl eftir þörfum
garam masala
malað cumin
malað kóríander
túrmerik
paprikuduft
• chiliflögur eftir smekk
hunang eða sykur, eftir smekk
• salt
• smjör eða olía til steikingar

Meðlæti

• basmati hrísgrjón
• naan brauð, (hér var notuð keypt pizzakúla sem var skipt niður í sex bita, flatt út og steikt á pönnu)
• ferskt kóríander
• límóna

Skref1

  • Skerið grill- og pönnuostinn í ca. 2 cm teninga. Hitið smá smjör eða olíu á pönnu og steikið ostinn við frekar háan hita þar til hann er fallega gylltur á öllum hliðum. Takið af pönnunni og leggið til hliðar.
  • Saxið laukinn smátt. Rífið eða saxið hvítlauk og engifer smátt.
  • Bræðið 2 msk af smjöri á djúpri pönnu eða í potti og steikið laukinn við meðalhita í 5–7 mínútur, þar til hann er mjúkur og farinn að taka örlítinn lit.
  • Bætið hvítlauk og engifer út í og steikið áfram í um 1 mínútu.

Skref2

  • Bætið garam masala, cumin, möluðu kóríander, túrmerik, paprikudufti og chili út í. Steikið kryddin með lauknum í um 30 sekúndur, þar til þau fara að ilma.
  • Bætið tómatpúrrunni út í og steikið áfram í 1–2 mínútur.
  • Hellið hökkuðu tómötunum út í og látið sósuna malla við vægan hita í 10–15 mínútur.

Skref3

  • Hrærið 1½ dl af rjómanum saman við og látið sósuna malla í nokkrar mínútur. Bætið meiri rjóma eða örlitlu vatni út í eftir þörfum þar til sósan hefur þá þykkt sem óskað er eftir.
  • Smakkið til með salti. Ef tómatarnir eru súrir má bæta við um 1 tsk af hunangi eða sykri til að ná góðu jafnvægi í sósuna.

Skref4

  • Bætið steikta ostinum út í sósuna rétt áður en rétturinn er borinn fram og hrærið varlega saman. Látið hitna í 1–2 mínútur.
  • Berið tikka masala fram með basmati hrísgrjónum og naan brauði. Toppið með fersku kóríander og berið lime-báta fram með.

Höfundur: Helga Ragnarsdóttir