Menu
Þunnbotna pizza með parmaskinku og klettasalati

Þunnbotna pizza með parmaskinku og klettasalati

Frábær pizza fyrir aðdáendur parmaskinku. 

Innihald

1 skammtar
Tortillakökur
smjör
hvítlauksrif
Parmesan
kirsuberjatómatar
Klettasalat eftir smekk
Parmaskinka
Pizzaostur
Mozzarella

Skref1

  • Útbúið hring úr álpappírnum og smyrjið smá ólífuolíu undir tortilla botninn.
  • Bræðið smjör í potti og kreisti hvítlaukinn út í.
  • Hvítlaukssmjörinu er penslað yfir allan tortilla botninn og því næst er rifnum parmesan osti stráð yfir.

Skref2

  • Raðið klettasalati og tómötum á pizzuna, síðan parmaskinku, Pizzaosti, ferskum Mozzarella og meira af rifnum parmesan.
  • Setjið pizzuna inn í ofninn á 180° þangað til hliðarnar verða aðeins stökkar. Bætið við aðeins meira af klettasalati þegar þið berið pizzuna fram.

Höfundur: Tinna Alavis