Menu
Þorskur með smjörsósu, chili og furuhnetum

Þorskur með smjörsósu, chili og furuhnetum

Þennan þorskrétt hef ég verið að gera lengi, uppskriftin var upprunalega öðruvísi en þegar það eru tvö lítil börn á heimilinu þá er tíminn í eldamennskuna minni og ég er búin að vera einfalda hana og er ekki frá því að hún verði betri með tímaum. Ég ætla deila með ykkur þessari dásamlega góðu fiskuppskrift og er nokkuð viss um að þið verðið sko ekki svikin.

 Uppskrift er fyrir 3 en hana er auðvelt að stækka.

Innihald

3 skammtar
þorskur
fersk steinselkja
ferskur chili
ristaðar furuhnetur
olía
safi úr hálfri sítrónu
salt og pipar

Smjörsósa

smjör
sojasósa

Sætkartöflumús

sæt kartafla, stór
smjör
hvítlauksrif, pressuð
salt

Sætkartöflumús

  • Berið smá olíu á kartöfluna í heilu lagi og setjið inn í ofn á 150 gráður í 2 tíma.
  • Þegar kartaflan er elduð í gegn er hún tekin út og skafið innan úr henni og sett í skál ásamt smjöri, hvítlauk og salti.
  • Ég er mjög hrifin af þessari aðferð þar sem uppvaskið er minna og það þarf ekki að vera fylgjast með kartöflunni, heldur set ég hana inn 2 tímum fyrir kvöldmat og tek út þegar fiskurinn fer inn.

Þorskur

  • Skerið niður steinselju og chili og setjið í skál með furuhnetum, olíu, sítrónusafa, salti og pipar.
  • Leggið þorskflökin í eldfast mót. Saltið og piprið og setjið 2/3 af blöndunni ofan á fiskinn.
  • Fiskurinn er síðan eldaður í ofni á 200 gráðum í 12-15 mínútur.

Smjörsósa

  • Þegar fiskurinn fer inn í ofn er gott að byrja á smjörsósunni
  • Smjör er brætt í potti við miðlungs hita og látið malla í um 10 mínútur.
  • Þá er smjörið tekið af hellunni og froðan veidd af með skeið.
  • Sojasósunni er bætt við smjörið og hrærð saman við.
  • Þegar allt er tilbúið þá fara fiskurinn og sætkartöflumúsin á diskinn, smjörsósunni er hellt yfir og restin af furuhnetublönduni sett á.

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir