Skref1
- Skerið paprikurnar gróft niður og steikið án þess að brúna í ólífuolíu.
- Bætið í hvítlauknum, vatninu og rjómanum.
- Sjóðið undir loki við vægan hita í 20 mínútur.
Skref2
- Sigtið þá vökvann frá yfir í annan pott og maukið paprikuna vel í blandara með smá ólífuolíu.
Skref3
- Sigtið aftur út í vökvann og bragðbætið með salti, pipar, grænmetiskrafti og ögn af cayennepipar, endið á að bæta saxaðri steinseljunni í sósuna.
Skref4
- Sjóðið pastað og berið fram með sósunni brauð og ólífuolíu.
Höfundur: Klúbbur matreiðslumeistara