Menu
Sveppapasta sem slær í gegn

Sveppapasta sem slær í gegn

Rjómlagaður pastaréttur með sveppum sem slær í gegn við hvaða tilefni sem er. Þennan rétt áttu pottþétt eftir að elda oftar en einu sinni.

Innihald

4 skammtar
ólífuolía
sveppir, sneiddir
sjávarsalt
skarlottlaukar, smátt saxaðir
spagettí
rjómi frá Gott í matinn
búnt steinselja, söxuð
sítróna, safi og fínrifinn börkur
smjör
fínrifinn Feykir eða parmesan
svartur pipar

Skref1

  • Setjið olíu á pönnu og steikið sveppina í um 5 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir og stökkir á báðum hliðum.
  • Saltið og bætið skarlottlauknum saman við og steikið þar til hann er farinn að mýkjast.

Skref2

  • Sjóðið pasta í saltvatni þar til það er farið að mýkjast en ekki orðið alveg mjúkt.
  • Takið pastað úr vatninu með töngum og færið yfir á pönnuna, ásamt 240 ml af pastavatni og rjóma.
  • Látið malla við miðlungshita í nokkrar mínútur þar til sósan er farin að þykkna.

Skref3

  • Takið af hitanum og bætið sítrónusafa, sítrónuberki, steinselju og Feyki (eða parmesan) saman við.
  • Piprið ríflega og njótið vel.

Höfundur: Berglind Guðmundsdóttir