Menu
Súkkulaðimarengstoppar með lakkrískurli

Súkkulaðimarengstoppar með lakkrískurli

Innihald

30 skammtar
eggjahvítur
sykur
flórsykur
lyftiduft
vanilludropar
súkkulaði bráðið
lakkrískurl

Skref1

  • Hrærið eggjahvítur og sykur saman þar til blandan verður hvít og stíf.
  • Bætið flórsykrinum og lyftiduftinu saman við ásamt vanilludropunum og hrærið vel.

Skref2

  • Blandið lakkrískurlinu saman við og hrærið með sleif og setjið til hliðar.

Skref3

  • Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði þar til það hefur bráðnað alveg.

Skref4

  • Hrærið ekki súkkulaðinu saman við marengsinn heldur slettið helmingnum af því yfir marengsinn og setjið rúmlega 1 matskeið af marengs í hverja köku og setjið á bökunarplötu með smjörpappír.
  • Þegar þið hafið sett helminginn af marengsinum á bökunarplötuna setjið þá restina af súkkulaðinu ofan á marengsinn og klárið að setja á bökunarplötuna.

Skref5

  • Bakið við 150°C í rúmlega 40 mínútur eða þar til marengstopparnir eru orðnir þurrir viðkomu.
  • Látið toppana standa aðeins þegar þið takið þá út úr ofninum áður en þið takið þá af plötunni.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir