Menu
Súkkulaðidraumur með súkkulaðiskel

Súkkulaðidraumur með súkkulaðiskel

Hér höfum við í einni skál stökka súkkulaðiskel sem brotnar undan skeiðinni og silkimjúka gríska jógúrt sem leynist undir. Hrein súkkulaðisæla og upplifun í hverjum bita.

Innihald

1 skammtar
Mmm... grísk jógúrt með súkkulaðiflögum
hrískaka, mulin
hnetusmjör
hunang
Nutella eða annað súkkulaðismjör
• heslihnetur, saxaðar
suðusúkkulaði, brætt
kókosolía

Aðferð

  • Myljið hrískökurnar og hrærið þær saman við grísku jógúrtina, hnetusmjörið, hunangið og Nutella.
  • Setjið í fallega skál eða beint í dósina.
  • Bræðið súkkulaði og kókosolíu.
  • Toppið grísku jógúrtina mð súkkulaðinu og stráið heslihnetum yfir.
  • Kælið í 20 mín eða frystið í 5 mín þangað til súkkulaðiskelin harðnar.
Aðferð

Höfundur: Mmm... grísk jógúrt