Menu
Súkkulaði brownie með rjómaosti

Súkkulaði brownie með rjómaosti

Ótrúlega ljúffeng sparikaka sem allir elska. Það er dásamlegt að bera hana fram með rjóma og berjum, ég mæli með hindberjum og jarðarberjum.

Fyrir sem bestan árangur er gott að undirbúa sig aðeins fyrir baksturinn og taka rjómaostinn og eitt egg úr ísskápnum og leyfa að ná stofuhita. Þá er auðveldara að blanda öllu saman og ná fram fallegri áferð á kökuna.

Innihald

12 skammtar

Súkkulaðideig:

dökkt súkkulaði
smjör
egg
sykur
vanilluextract eða vanilludropar
hveiti
salt

Rjómaostadeig:

hreinn rjómaostur frá Gott í matinn (mikilvægt að hann sé við stofuhita)
sykur
stórt egg (við stofuhita er best)
vanilluextract eða vanilludropar

Skref1

  • Hitið ofn í 160 gráður með blæstri, annars 180 gráður.

Skref2

  • Bræðið saman súkkulaði og smjör og látið standa þangað til að blandan hefur náð stofuhita.

Skref3

  • Hrærið eggjum, sykri og vanillu saman við súkkulaðiblönduna og sigtið að lokum hveitið út í og blandið varlega saman.

Skref4

  • Hrærið rjómaost, sykur, egg og vanillu vandlega saman í annarri skál.

Skref5

  • Hellið ¾ af súkkulaðideiginu í form.
  • Hellið þá rjómaostablöndunni yfir og dreifið úr eins og hægt er.
  • Setjið þá restina af súkkulaðideiginu yfir og dragið með hníf í gegn til að fá fallegt mynstur í kökuna.

Skref6

  • Bakið í miðjum ofni í 35-40 mínútur.
  • Kælið kökuna alveg áður en þið takið hana úr forminu og berið fram.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir