Menu
Stökkar quesadillas með osti

Stökkar quesadillas með osti

Hér höfum við stökkar quesadillas með grísku ívafi. Einstaklega ferskar með bráðnum mozzarella osti, fersku spínati og ostakubb. Einfalt, fljótlegt og ómótstæðilega gott. Hentar sem létt máltíð eða forréttur. Einnig er hægt að bæta við kjúkling í fyllinguna fyrir þau sem vilja meira prótein.

Uppskriftin dugar fyrir 2-3.

Innihald

2 skammtar
stórar tortillur, 2-3 stk.
ferskt spínat
mozzarella perlur
ostakubbur frá Gott í matinn
kirsuberjatómatar
rauðlaukur
salt
pipar
ferskur sítrónusafi
ólífuolía
kóríander, má sleppa

Skref1

  • Setjið spínat í skál, ásamt mozzarellaperlum, smátt skornum ostakubbi, niðurskornum kirsuberjatómötum og smátt söxuðum rauðlauk. Ef þið viljið hafa kóríander þá setjið þið hann saman við.
  • Bætið sítrónusafa saman við ásamt salti og pipar og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.

Skref2

  • Skiptið blöndunni á milli þriggja tortilla og brjótið hverja saman til helminga.
  • Setjið 1 msk. af ólífuolíu á pönnu og steikið tortillurnar við meðal háan hita í rúmar tvær mínútur á hvorri hlið, eða þar til osturinn hefur náð að bráðna og tortillurnar er orðnar stökkar.
Skref 2

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir