Menu
Steikartaco með guacamole og mangósalsa

Steikartaco með guacamole og mangósalsa

Mexíkóskir réttir eru alltaf vinsælir og þetta steikartaco er einstaklega bragðgott og ostakubburinn (áður fetakubbur) setur punktinn yfir i-ið. 

Innihald

1 skammtar
nautasteik t.d. entrécote
ólífuolía
steinselja
rautt chili
hvítlauksrif
salt og pipar
Ostakubbur frá Gott í matinn

Mangósalsa:

mangó
kirsuberjatómatar
laukur
smátt söxuð steinselja
ólífuolía
salt og pipar
safi úr hálfu lime

Lárperusósa:

grísk jógúrt frá Gott í matinn (1 dós)
stór lárpera (avocado) eða 2 litlar
smátt saxaður kóríander
hunang
safi úr hálfu lime
salt og pipar

Steikartaco

  • Saxið niður steinselju, chili og hvítlauk. Blandið saman við ólífuolíu og nuddið steikina upp úr marineringunni, kryddið einnig með salti og pipar.
  • Hitið grillpönnu og setjið kjötið á þegar pannan er orðin mjög heit, steikið í um það bil fimm til sex mínútur á hvorri hið. Það fer auðvitað eftir þykktinni á kjötinu og smekk hvers og eins.
  • Kjötið þarf að hvíla í lágmark sex mínútur þegar það er tilbúið.
  • Þegar kjötið er búið að hvílast er gott að skera það í þunnar sneiðar og bera fram með tortillavefjum, hreinum ostakubbi, mangósalsa og ljúffengri lárperusósu.

Mangósalsa

  • Skerið hráefnið smátt og blandið saman í skál, hellið smá ólífuolíu saman við og kryddið til með salti og pipar.
  • Rétt áður en þið berið salatið fram kreistið þið vel af límónusafa yfir.

Lárperusósa - guacamole

  • Setjið öll hráefnin í blandara eða matvinnsluvél og maukið þar til sósan er orðin silkimjúk.
  • Berið strax fram og njótið.

Höfundur: Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir