Menu
Spagettí carbonara með pylsum

Spagettí carbonara með pylsum

Einföld útfærsla á mjög klassískum pastarétti sem aldrei klikkar. Í stað beikons eru notaðar gæðapylsur sem gefa gott kryddbragð.

Innihald

4 skammtar
spagettí
meðalstórar gæðapylsur; ítalskar pylsur, kryddpylsur, chorizo-pylsur, skornar í bita
ólífuolía
eggjarauður
egg
rjómi frá Gott í matinn
pastasoð
rifinn parmesanostur eða Óðals Tindur
salt og svartur pipar

Skref1

  • Skerið pylsurnar í bita og steikið á pönnu í örlítilli ólífuolíu.
  • Það er gott að nota ólíkar pylsur. Spænskar chorizo eru harðari en aðrar og þær er gott að nota með, 1 stk, á móti kryddpylsum og ítölskum.
  • Af pylsunum kemur mjög góð kryddolía sem er nauðsynleg yfir spagettíið.
  • Sjóðið spagettí skv. leiðbeiningum á pakka. Munið af halda hluta af pastavatninu.
  • Hrærið saman eggjarauður, egg, rjóma og parmesanost og saltið örlítið og piprið blönduna.

Skref2

  • Þegar pastað er soðið og það hefur verið látið renna vel af því er það sett í skál eða aftur í pottinn.
  • Pylsurnar eru hrærðar saman við það og olían af pönnunni látin fljóta með.
  • Eggjablöndunni er hellt yfir og öllu blandað varlega saman.
  • Þá er pastavatninu hellt yfir og áfram er blandað vel. Pastavatnið losar um eggjablönduna og mýkir réttinn.
  • Berið strax fram með rifnum parmesanosti.

Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir