Menu
Snöggsteikt carpaccio

Snöggsteikt carpaccio

Klassískur réttur og ofureinfaldur. Þessi uppskrift felur það þó í sér að snöggsteikja nautakjötið örlítið í stað þess að bera það fram alveg hrátt.

Innihald

1 skammtar

Hráefni

nautalund
ólífuolía
klettasalat
ólífuolía
ferskur sítrónusafi
safi úr ferskri sítrónu
ólífuolía
balsamikedik
parmesanostur

Skref1

  • Snöggsteikið lundina í örlítilli olíu í um eina mínútu á hverri hlið, allan hringinn.
  • Saltið og piprið kjötið.
  • Takið af pönnunni og látið standa í 15-20 mínútur.
  • Vefjið lundinni þá í plastfilmu og stingið í frysti í 1-2 klukkustundir.

Skref2

  • Að því loknu er þægilegt að skera kjötið í þunnar sneiðar.
  • Leggið sneiðarnar á plastfilmu, setjið aðra filmu yfir og rúllið yfir sneiðarnar með kökukefli eða flösku.
  • Farið varlega svo sneiðarnar skemmist ekki.
  • Leggið á disk.

Skref3

  • Blandið olíu og sítrónusafa saman við salatið og leggið það á miðjan diskinn, ofan á kjötsneiðarnar.
  • Dreypið ferskum sítrónusafa yfir. Rífið parmesanost yfir diskinn.
  • Hrærið saman olíu og balsamikedik, berið fram með matnum.

Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir