Menu
Skyrterta með vanillu og jarðarberjum

Skyrterta með vanillu og jarðarberjum

Fersk jarðarber passa fullkomlega með skyrkökum og ekki skemmir ef fersk mynta leynist í eldhúsinu.

Innihald

8 skammtar

Botn

repjuolía eða kókosolía
hrásykur
haframjöl
heilhveiti
vatn

Fylling

KEA skyr vanillu
rjómaostur frá Gott í matinn
hunang eða stevia (sætuefni) eftir smekk
jarðarber, eða önnur ber
kókosflögur (má sleppa)
fersk mynta, fínsöxuð (má sleppa)

Skref1

  • Stillið ofninn á 200°C.

Skref2

  • Hrærið öllu saman í skál sem á að fara í botninn.
  • Þrýstið deiginu niður/fletjið með höndunum annað hvort í eldföstu móti sem er 24 cm í þvermál eða notiðlausbotna hringform af sömu stærð. Látið deigið ná upp á kanta formsins.
  • Bakið í ofninum í 12 - 15 mínútur.
  • Kælið.

Skref3

  • Hrærið fyrstu þremur fyllingarhráefnunum saman og setjið jafnt á bökubotninn.

Skref4

  • Raðið berjum eða ávöxtum yfir og skreytið með kókosflögum og myntu ef vill.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir