Menu
Skyrterta með oreo og ástaraldin

Skyrterta með oreo og ástaraldin

Ástaraldin leika stórt hlutverk í þessari uppskrift og guli liturinn er bæði páska- og sumarlegur og því upplagt að bera skyrkökuna á borð við þau tilefni.

Innihald

8 skammtar
oreo-kexkökur (176 g)
smjör, brætt
KEA skyr vanillu
rjómi frá Gott í matinn
börkur af 1 límónu eða 1 tsk sítróna
matarlímsblað
vatn
sykur
ástaraldin

Skref1

  • Maukið Oreo kexið í matvinnsluvél og blandið smjöri saman við.
  • Þrýstið niður í form með gaffli.
  • Kælið í a.m.k. 20 mínútur.

Skref2

  • Þeytið rjóma. Passið að stífþeyta ekki.
  • Blandið skyrinu og límónuberkinum saman við. Hrærið.
  • Dreifið jafnt yfir botninn.
  • Kælið í 20 mínútur eða setjið í frysti í 10 mínútur.

Skref3

  • Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn í 5 mínútur.

Skref4

  • Setjið 4 msk. af vatni og sykur í pott og hitið saman að suðu.
  • Kreistið vökvann af matarlíminu og setjið það út í sykurblönduna.
  • Hrærið.
  • Bætið kjöti ástaraldinanna saman við.
  • Kælið aðeins.
  • Hellið yfir tertuna og kælið í ísskáp í a.m.k. klukkutíma.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir