Menu
Skyrterta með kirsuberjasósu

Skyrterta með kirsuberjasósu

Einföld og góð skyrkaka í saumaklúbbinn eða sunnudagskaffið. 

Innihald

1 skammtar
LU kex
smjör
rjómi
KEA vanillu skyr
Kirsuberjasósa

Aðferð

  • Myljið LU kexið í matvinnsluvél og hellið því í kringlótt form.
  • Bræðið smjörið og hellið yfir kexið.
  • Magn smjörsins fer algjörlega eftir smekk en gott er að hafa kexið vel blautt.
  • Þeytið rjómann og hrærið skyrinu vel saman við.
  • Smyrjið því svo jafnt yfir kexblönduna.
  • Í lokinn er kirsuberjasósunni hellt yfir allt.
  • Kælið tertuna inni í ísskáp þar til hún er borin fram.

Höfundur: Tinna Alavis