Menu
Skyrsnakk - macros

Skyrsnakk - macros

Hér er á ferðinni hið fullkomna snakk ef þig langar í eitthvað en samt eiginlega ekki. Eða bara eitthvað smá eftir kvöldmat.

Innihald

1 skammtar
Ísey skyr hreint, eða vanillu
hnetusmjör (eða 10 g)
sukrin gold (eða 10 g)
frosin hindber

Aðferð

  • Blandaðu skyrinu, hnetusmjörinu og sírópinu saman í skál.
  • Ef þú ert með Ísey skyr með vanillubragði er óþarfi að nota sírópið.
  • Settu næst bökunarpappír í fat og dreifðu skyrblöndunni á fatið. Reyndu að hafa blönduna frekar þunna, um 5mm, það er þægilegra að borða skyrsnakkið ef það er ekki of þykkt.
  • Settu svo hindberin ofan á og inn í frysti í 2-3 klst.
  • Taktu út og skerðu í litla bita.
  • Láttu bitana standa á borði í nokkrar mínútur áður en þú bítur í þá.
  • Fullkomið snakk á kvöldin eða sem hollir bitar fyrir börnin.
Aðferð

Höfundur: Helga Magga