Menu
Skyrbitar með hnetusmjöri

Skyrbitar með hnetusmjöri

Einföld og ljúffeng hugmynd þegar þig langar að gera eitthvað aðeins meira úr Ísey skyrinu þínu.

Innihald

12 skammtar
granóla að eigin vali
kókosolía, brædd og skipt í tvennt
Ísey skyr, vanilla
hnetusmjörsduft
mjúkt hnetusmjör
agavesíróp
vanilludropar
dökkt súkkulaði
ristaðar kókosflögur til skrauts

Skref1

  • Myljið granólað og blandið saman við 1 msk. af bræddri kókosolíu.
  • Skiptið granólablöndunni jafnt í 12 lítil sílikonmuffinsform.
  • Hrærið saman skyri, hnetusmjörsdufti, hnetusmjöri, agavesírópi og vanilludropum þar til blandan er mjúk og jöfn.

Skref2

  • Skiptið skyrblöndunni jafnt yfir granólabotnana og skiljið eftir smá pláss efst fyrir súkkulaðið.
  • Bræðið súkkulaðið og hrærið 1 msk. af bræddri kókosolíu saman við. Hellið súkkulaðinu yfir hvern bita þannig að það þeki skyrblönduna.

Skref3

  • Stráið ristuðum kókosflögum yfir og setjið í frysti í að minnsta kosti 3 klukkustundir, eða þar til bitarnir eru orðnir vel stífir.
  • Takið bitana úr formunum þegar þeir eru orðnir stífir og geymið í loftþéttu íláti í frysti.
Skref 3

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir