Botn
					
						- Hveiti, sykri og salti er blandað saman í skál
 
						- Smjör er brætt við vægan hita í potti og kakói og vatni bætt við þegar það hefur bráðnað alveg
 
						- Í aðra skál eru eggin sett og þau þeytt aðeins með gaffli. Súrmjólk, matarsóda og vanilludropum bætt út í og hrært.
 
						- Næst er súrmjólkurblöndunni bætt út í hveitiblönduna og hrært aðeins og síðan kakóblöndunni úr pottinum og hrært vel þar til allt hefur blandast saman.
 
						- Þá er deigið sett í skúffu, skúffan sem ég notaði var 40x30 á stærð. Skúffan er smurð með smjöri eða notaður bökunarpappír eins og ég gerði.
 
						- Inn í ofn í 25 mínútur eða þar til kakan hefur tekið aðeins lit.
 
					
			Krem
					
						- Smjör er brætt við vægan hita í potti og þegar smjörið hefur alveg bráðnað er flórsykri, kakói og kaffi blandað saman við og hrært með sleif. 
 
						- Kremið þarf að hræra með sleifinni í smá tíma til að fá það silki mjúkt og glansandi.
 
						- Áður en kremið er sett á, stingið með gaffli í alla kökuna og smyrjið svo kreminu á. Kakan er svo toppuð með kókos.
 
					
                        		
            		Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir